16.11.2010
Safnahelgi á Suðurlandi tókst vel.
Aðstandendur og ekki síður gestir Safnahelgar á Suðurlandi voru ánægðir með dagskrána og aðsókn var góð að hinum ýmsu uppákomum og boðum.
Nokkrir staðir í Uppsveitunum tóku þáttog hér fylgja myndir af viðburðum safnahelgar.
Fyrri tvær myndirnar eru frá Kaffi Kletti í Bláskógabyggð þar sem flutt var dagskrá í tali og tónum tileinkuð Stefáni Jónssyni og þar kom unga fólkið sterkt inn og hjálpaði til við flutninginn.
Þriðja myndin er af samansafninu á Sólheimum í Hrunamannhreppi og er það skemmtileg tilbreyting en um leið merkileg heimild um söguna sem þau hjón Esther og Jóhann eru að varðveita.




