Gott námskeið haldið fyrir foreldra að Hótel Heklu
Námskeið um slysavarnir og skyndihjálp sniðið að börnum var haldið að Hótel Heklu þann 23. okt. (fyrsta vetrardag) frá kl. 10:00 -14:30.
Herdís L. Storgaard hjúkrunarfræðingur og kennari sagði frá orsökum slysa á börnum og kenndi skyndihjálp og endurlífgun.
Upplýsingar um öryggi barna á www.forvarnahusid.is
Upplýsingar um heita vatnið og brunasár á www.stillumhitann.is
Margt fróðlegt kom fram á námskeiðinu.
Tölur og rannsóknir sýna að:
60% fjöldi slysa á börnum á leikskólaaldri er á heimilum barnanna.
20% slysa eru við heimilið eða í nánasta umhverfi þess.
20% á leikskóla, hjá dagforeldrum og annars staðar.
15% fleiri drengir slasa sig en stúlkur.
Ísland er með flest slys á börnum á norðurlöndunum! Því miður.
Það segir okkur að hér þurfum við að bæta okkur verulega.
Fram kom hjá Herdísi að slys eru EKKI tilviljun og allltaf leynist ástæða fyrir þeim og stundum er hún augljós!
Ástæður slysa á börnum fara eftir:
ÞROSKA barnsins - EFTIRLITI með barninu - UMHVERFI barnsins.
Um þetta þurfa foreldrar að vera meðvitaðir og gera ráðstafanir þar að lútandi í forvörnum.
Við hringjum í: EINN EINN TVO eða
1 - 1 - 2 þegar alvarlegt slys verður
en ekki 112 ( hundarð og tólf).
(Þegar alvarlegt slys ber að höndum getur fólk frekar ruglast í því að hringja eftir hjálp ef hugsað er um að hringja í hundrað og tólf, 112, en 1 1 2 )
Hugsum því: einn einn tveir! 1 1 2
Á milli 30-40 manns mættu en Foreldrafélög leik og grunnskóla höfðu forgöngu um námskeiðið, þá styrkti sveitarfélagið félögin því foreldrum var þetta að kostnaðarlausu og eiga félögin heiður skilið fyrir framtakið.




