Atvinnulífsfundir í Uppsveitum Árnessýslu 11. - 13. október n.k.
Atvinnulífsfundir í Uppsveitum Árnessýslu
verða haldnir á eftirtöldum stöðum í október
Aratungu mánudaginn 11. október kl. 14:00 – 16:00
Árnesi þriðjudaginn 12. október kl. 13:00 – 15:00
Flúðum þriðjudaginn 12. október kl. 16:00 – 18:00
Borg miðvikudaginn 13. október kl. 14:00 – 16:00
Á fundinum kynna eftirtaldir aðilar starfsemi sína
og verkefni sem unnið hefur verið að í Uppsveitunum.
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
Vaxtasamningur Suðurlands
Háskólafélag Suðurlands
Matarsmiðja Uppsveitanna
Menningarráð Suðurlands
Markaðsstofa Suðurlands
Ferðamálafulltrúi Uppsveitanna/klasar
Einnig verður gefinn kostur á spurningum og umræðum.
Sveitarstjórnarmenn, atvinnumálanefndir, menningarmálanefndir, rekstraraðilar, einstaklingar með hugmyndir og að sjálfsögðu allir áhugasamir íbúar Uppsveita Árnessýslu eru hvattir til að mæta og fræðast.
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
í samvinnu við sveitarfélögin.
Mynd 1. Birkikvistur í haustlitum.
Mynd 2. Gullfoss í Hvítá.
Mynd 3. Morgunroði 20. sept. 2010 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Búrfell til vinstri. Ljósm.: khg.




