486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
04.10.2010

Afsláttur v/fjallskila 2010.

  • 1
  • 2

Í 10 gr. Fjallskilareglugerðar, lið d. segir m. a.:
„ Ef hreppsnefnd telur sannað að sauðfjáreigandi reki ekki fé sitt á afrétt, má hún undanþiggja fé hans fjallskilum allt að 1/3 á fjallskilaskyldan búpening. Bundið skal það þeim skilyrðum að féð valdi ekki öðrum jarðeigendum tjóni.“

Þeir sem telja sig uppfylla þessi skilyrði reglugerðarinnar geta sótt um afslátt hjá sveitarfélaginu og ber að skila skriflegum umsóknum inn á skrifstofuna í Árnesi fyrir 15. október 2010.

Ljósm.: khg.

Mynd 1. Í Reykjaréttum haustið 2010.

Mynd 2. Sólarupprás í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 23. september 2010.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar