486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
23.09.2010

Safnahelgi á Suðurlandi 2010

Safnahelgi 2010 - hver ætlar að vera með?  

   
Allir sem hafa áhuga á að taka þátt og eru með dagskrárlið eru beðnir um að senda upplýsingar sem allra fyrst á menning@sudurland.isÞetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Dagskráinn þarf að liggja fyrir um miðjan október.
 
Allt sem er að gerast á Suðurlandi um þessa helgi á erindi í dagskránni svo fremur sem um menningarleg dagskrá er að ræða. Þetta getur verið allt sem er að gerast á söfnum, tónleikar, sýningar, matarveislur og fl. Endilega verið í sambandi ef ykkur langar að koma upplýsingum á framfæri og ræða hugmyndir sem geta átt erindi á dagskrá helgarinnar (gsm. 896-7511).
 
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram með skráningu:
 
Hver
 
Hvar
 
Hvenær
 
Hvað
a)    Stuttur texti, max 20 orð
b)   Texti með skýringum (ef þörf er á)
 
Tengiliður (nafn, netfang, gsm.)
 
Ef dagskrárliður er endurtekin t.d. föst, laugardagur og/eða sunnudagur ber að taka það fram.

 

Myndin er tekin í ferð þegar Upplit menningarklasi uppsveita fór í skógarferð í Þjórsárdal með 27 ferðalanga. Jóhannes á Ásólfsstöðum framreiddi ketilkaffi og kakó fyrir gestina og þeir Hreinn Óskarsson skógarvörður eru þarna í léttu spjalli.

Ljósm.: Ásborg Arnþórsdóttir.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar