486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
22.09.2010

Velheppnuð haustferð í þjórsárdal 19. september

Upplit, menningarklasi uppsveita Árnessýslu, bauð upp á skógarferð sunnudaginn 19.september sl. Hreinn Óskarsson skógarvörður á suðulandi var leiðsögumaður í ferðinni.

Frá Árnesi var ekið inn í Búrfellsskóg, þar var Þjófafoss skoðaður og gengið í gegnum skóginn. Síðan voru rústirnar á Sámstöðum skoðaðar, og rústirnar af bænum Sandártungu heimsóttar. Sandártunga var bær í Þórðarholtinu í Þjórsárdal, ca.2 km. vestan við Hjálparfoss.

Menn hafa deilt um það gegnum tíðina hvort bærinn heiti Sandatunga eða Sandártunga. En þátttakendur í ferðinni fengu verkefni, sett var niður skilti frá Fornleifanefnd og á því stóð Sandártunga.

 

Síðan var farið í Þjórsárdalsskóg og drukkuð ketilkaffi að hætti Jóhannesar frá Ásólfsstöðum, ásamt venjulegu kaffi og heimaböku meðlæti. Til stóð að fara með 20 manns í ferðina og loka síðan á þátttöku. En mikill áhugi var að komast í ferðina, og fóru 27 manns.


Fleiri sýndu áhuga en voru uppteknir við annað. Ákveðið hefur verið að Upplit bjóði upp á aðra skógarferðferð næsta haust, og pottþétt að skilti verður með í ferðinni.

 

Myndin er af hópnum við skiltið á þessum fallega haustdegi.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar