01.09.2010
Maíspokarnir fást í Krónunni, Landstólpa og Versl. Árborg
Að gefnu tilefni:
Íslenska gámafélagið hefur náð samningum við Kaupás/Krónuna á Selfossi um sölu á maíspokum fyrir lífrænan úrgang frá heimilum. Auk þessa hafa þeir náð umtalsvert betri samningum við birgja sína varðandi kaup á pokunum svo verðið lækkar verulega með þessari aðgerð.
Bendum einnig á að báðar stærðirnar, 8 ltr. og 30 ltr. fást hjá Landstólpa ehf og Verslunin Árborg selur minni stærðina, 8 ltr.




