MINNISVARÐAR UM DR. HELGA PJÉTURSS
Í desember árið 2005 voru liðin 100 ár frá því að Helgi varð doktor í jarðfræði, fyrstur Íslendinga, og var honum af því tilefni reistur minnisvarði í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.
Helgi gerði sínar fyrstu meginuppgötvanir að Hellisholtum í Hrunamannahreppi og hefur nú verið komið þar fyrir upplýsingaskildi til minningar um það afrek. Jafnframt hefur honum verið reistur minnisvarði að Hlíð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þar sem jarðfræði og heimsfræðistarfa hans er minnst, en Helgi hafði jafnan aðsetur hjá frændfólki sínu þar þegar hann vann að rannsóknum á þessum slóðum.
Minnisvarðarnir voru afhjúpaðir sunnudaginn 22. ágúst n.k. Fyrst í Hlíð kl. 14.00 og í framhaldi að Hellisholtum. Síðan var boðið til kaffiveitinga á Kaffihúsinu Grund á Flúðum.
Heimspekistofa Dr. Helga Pjeturss stóð fyrir því að reisa minnisvarðana.
Mynd nr. 1 Hlíðarbræður, Páll og Tryggvi Steinarssynir og Anna M. Flygenring eiginkona Tryggva við minnisvarðann.
Mynd nr. 2 Gestir við athöfnina í Hlíð.




