486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
13.08.2010

Ný hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Skeiða- og Gnúpverjahreppi er stjórnað af fimm manna hreppsnefnd sem valin er í kosningum á fjögurra ára fresti. Meginhlutverk hennar er að sinna allri opinberri þjónustu, svo sem menntunar- og uppeldismálum, bygginga - og skipulagsmálum, atvinnu og umhverfismálum.

Ný hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps tók til starfa í sveitarstjórnarkosningunum 2010.

Hreppsnefndina skipa þau:

 

Gunnar Örn Marteinsson, oddviti  K lista

Jón Vilmundarson, varaoddviti  K lista

Harpa Dís Harðardóttir,  K lista

Oddur Guðni Bjarnason,  N lista

Björgvin Skafti Bjarnason,  E lista

Frá v. á mynd: Oddur Guðni, Björgvin Skafti, Gunnar Örn, Jón og Harpa Dís.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar