486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
16.06.2010

Eyþór Brynjólfsson sér um fjallaskálana á Gnúpverjaafrétti

  • 1
  • 2
  • 3

Eyþór Brynjólfsson sér um fjallaskálana á Gnúpverjaafrétti.

Gljúfurleit, Bjarnalækjarbotna og Tjarnarver.

Pantanir eru teknar í síma  897-1112

Verð pr mann í gistingu er kr. 1.600,-  í Gljúfurleit og Bjarnalækjarbotnum

Hey pr. hest í þeim skálum kr. 600,-

Börn 13 ára og yngri kr. 1000,-

Aðstöðugjald pr. mann, óháð aldri,  í Tjarnarveri  kr. 500,-

Hey fyrir hestinn í Tjarnarveri kr. 800,-

 

Mynd nr. 1. Fjallmenn Gnúpverja við skálann í Gljúfurleit.  

Mynd nr. 2. Skálinn í Bjarnalækjarbotnum.

Mynd nr. 3. Aðstöðuhús í Tjarnarveri.

 

 

Í Fjallaskálana Klett og Hallarmúla á Flóamannafrétti er tekið við pöntunum á hreppsskrifstofu  í síma 486-6014.

Verð pr. mann í gistingu í þá skála er 1.500,-

12 ára og yngri kr. 750,-

Ferðalangar skulu sjálfir útvega hey úr sveitarfélaginu eða af sama sauðfjárveikivarnarsvæði og húsin eru í.

Ingvar Hjálmarsson í Fjalli á Skeiðum, gsm 891-9597 hefur selt hey í húsin.

Gott er að hafa allan viðlegubúnað meðferðis, ekki er hægt að treysta á gas þó svo að reynt sé að hafa það til staðar en engin eldavél er í húsunum, þar eru pottar og eitthvað af leirtaui. Rennandi kalt vatn er í húsunum og vatnssalerni.

Í Kletti eru kojur fyrir 19 manns á neðri hæð og annað eins pláss á dýnum, á svefnlofti.

Hallamúli  tekur sama fjölda gesta og eru þetta sams konar hús.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar