486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
06.06.2010

Skemmtilegur landnámsdagur

  • 1
  • 2
  • 3

Landnámsdagur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi heppnaðist vel.

Fólk safnaðist saman á þeim stöðum sem boðið var upp á atriði en flestir komu  þó að þjóðveldisbænum í Þjórsardal þar sem leikhópur úr Ungmennafélagi Gnúpverja frumflutti  leikatriði um Gauk á Stöng sem samið var af hópnum í vetur, þá voru Vikivakar dansaðir  og einnig voru sýndir gamlir leikir af félagsskap sem í er áhugafólk um víkingahefðir hér á Íslandi.  Gamalt íslenskt handverk var til sýnis og sölu og gömul íslensk vinnubrögð voru sýnd inni í bænum sjálfum, örmessur fluttar,  ásamt því að konur úr Kvenfélagi Skeiðahrepps  buðu upp á verulega góða íslenska kjötsúpu að hætti landnámsmanna.

Veðrið lék við gesti og var þetta hin skemmtilegasta stund í Þjórsárdal.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar