486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
02.06.2010

Landnámsdagur 5. júní. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.

  • 1
  • 2

Nú er komið að því að við skemmtum okkur saman og minnumst forfeðra okkar í leik og starfi á landnámsdegi.

 

Dagskráin er eftirfarandi og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

 

Ólafsvallakirkja kl. 10:00-12:00
Opin kirkja, sr. Axel Árnason fjallar um Olav Tvennumbrúna landnámsmann.

 

Húsatóftir I.  kl. 10:00-12:00
Opinn sveitabær, landnámshænur á öllum aldri, akurhænur, klak, andarungar.

 

Skaftholtsréttir  kl. 11:00-13:00
Kindur og nýfædd lömb.  Hestar ,teymt undir börnum.


Þjórsárdalsskógur kl 11:00-14:00 
Skógræktin með leiðsögn, kynning á handverksverkefni,
skógarkaffi og skógarpönsur yfir eldi. 

 

Stöng kl. 12:00-14:00
Opið hús, fornleifar og Fornleifaverndin með leiðsögn.

 

Þjóðveldisbærinn
Skipulögð dagskrá kl. 14:00-16:00  (opið frá 13:00)


Víkingahópurinn Hringhorni og handverkshópurinn frá Þingborg,
fornt handverk og leikir.


Leikhópur undir stjórn Vilborgar Halldórsdóttur  flytur leikatriði um Gauk Trandilsson á Stöng,  tónlistarflutningur Gauks Vikivaki. 


Hildur Hákonardóttir og Þór Vigfússon flytja örfá erindi úr hinu forna vefkvæði Darraðarljóðum.

 

Örmessur í litlu kirkjunni. 


Boðið upp á kjötsúpu að hætti landnámsmanna.

 

Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar