486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
01.06.2010

Síðasti fundur sveitarstjórnar 2006-2010

Síðasti fundur sveitarsjórnar sem kosin var 2006 var haldinn 01. júní 2010 og á kjörtímabilinu áttu þrír listar menn í sveitarstjórn. 

• A-listi Framfarasinnar - með 2 menn kjörna
• L-listi Lista um farsæla sameiningu - með 2 menn kjörna
• E-listi Einingar - með 1 kjörinn mann.

 

Gunnar Örn Marteinsson  A-lista
Ingvar Hjálmarsson A-lista
Jón Vilmundarson L-lista
Tryggvi Steinarssn L-lista
Björgvin Skafti Bjarnason E-lista

Ingvar og Tryggvi gáfu ekki kost á sér áfram og  hverfa því til annarra starfa og var þeim þakkað gott samstarf á síðasta fundinum.

Nú mun ný sveitarstjórn taka við.

K-listi  Farsælla framfarasinna - með 3 menn kjörna
N-listi  Nýrra tíma, nýs afls  -  með 1 mann kjörinn
E-listi  Einingar  -  með 1 mann kjörinn

 

Sveitarstjórn 2010-2014 er þannig skipuð:


1. Gunnar Örn Marteinsson (K)
2. Harpa Dís Harðardóttir (K)
3. Oddur Guðni Bjarnason (N)
4. Jón Vilmundarson (K)
5. Björgvin Skafti Bjarnason (E)

Fyrsti fundur á nýju kjörtímabili verður bráðlega auglýstur eins og venja er.

Myndin er af fráfarandi sveitarstjórn f.v. Ingvar, Jón, Tryggvi, Gunnar Örn og Björgvin Skafti.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar