31.05.2010
K-listi farsælla framfarasinna í meirihluta í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í sveitarfélaginu.
K-listinn fékk 57,4% atkvæða og þrjá menn kjörna. N-listi Nýrra tíma nýs afls fékk 81 atkvæði og einn mann og E-listi Einingar 51 atkvæði og sömuleiðis einn mann.
Á kjörskrá voru 370 og kusu 324 eða 87,57%. 295 kusu á kjörstað en 29 utan kjörfundar. Gildir seðlar voru 322 og 2 ógildir, að því er kemur fram á vefnum sunnlenska.is og mbl.is
Sveitarstjórn kjörtímabil 2010-2014
1. Gunnar Örn Marteinsson (K)
2. Harpa Dís Harðardóttir (K)
3. Oddur Guðni Bjarnason (N)
4. Jón Vilmundarson (K)
5. Björgvin Skafti Bjarnason (E)
Fréttin í heild sinni hér sem birtist á mbl.is




