486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
18.05.2010

Framlagning kjörskrár í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

  • 1
  • 2

Kjörskrá í Skeiða- og Gnúpverjahreppi vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí 2010 liggur frammi á almennum opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins í Árnesi  kl. 09:00 – 12:00  og 13:00 – 15:00 mánudaga – fimmtudaga  frá og með 19. maí 2010.

 

Kosið verður í Brautarholti -  salnum.


Kjörstaður opinn frá kl. 10:00  -  18:00

 

Kosið er utankjörstaðar hjá sýslumönnum.

 

 

Oddviti

Skeiða- og Gnúpverjahrepps

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar