486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
03.05.2010

Sveitarstjórnarkosningar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 2010

Framboðsfrestur vegna kosninga til sveitarstjórna sem fram eiga að fara laugardaginn 29. maí 2010 rennur út kl. 12:00 á hádegi laugadaginn 8. maí 2010.

Framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn sveitarfélagsins fyrir þann tíma og yfirkjörstjórn tekur á móti á framboðslistum á skrifstofu sveitarfélagsins í Árnesi, laugardaginn 8. maí frá kl. 11:00 - 12:00.

Á framboðslista skulu vera að lágmarki 5 nöfn frambjóðenda og eigi fleiri en 10.  Tilgreina skal fullt nafn frambjóðenda, kennitölu hans og heimili.

Framboðslistum fylgi yfirlýsing þeirra, sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listana og fylgja skal skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í sveitarfélaginu, 20 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 40.

Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar.


Með hverjum lista skal fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um það hverjir tveir menn séu umboðsmenn hans.

Bendum einnig á heimsíðuna http://www.kosning.is þar eru leiðbeiningar og eyðublöð fyrir þá sem bjóða fram lista og einnig er hægt að fygjast með framkomnum listum á sérstökum upplýsingasíðum um sveitarfélög landsins.

Nánari upplýsingar veitir Bjarni G. Bjarnason í síma 893-5512.


Yfirkjörstjórn
Skeiða– og Gnúpverjahrepps.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar