486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
21.04.2010

50.000,- kr. til framboða í Skeiða- og Gnúpverjrahr. en ekki 500 þús.!

  • 1
  • 2
  • 3

Ranglega er farið með tölur í Dagskránni  þann 21. apríl 2010.

Þar segir að Skeiða- og Gnúpverjahreppur veiti 500.000 kr.  á framboð vegna sveitarstjórnakosninganna í vor.  það er ekki rétt, heldur eru það kr. 50.000,- sem veittar eru á hvert framboð sem taka mun þátt í kosningunum.

Meðfylgjandi er bókun sveitarstjórnar sem gerð var á 64. fundi  þann 06.04.2010.

"18.  Styrkir til framboða.
Sveitarstjórn samþykkir að veita hverju framboði til sveitarstjórnar í komandi sveitarstjórnarkosningum kr. 50.000 í styrk. Einnig frían aðgang að húsnæði sveitarfélagsins til fundarhalda."

 

Myndirnar eru teknar, í Árnesi, af gosinu í Eyjafjallajökli  þann 20. apríl 2010.

 

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar