486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.
02.09.2010

Göngur og réttir fyrr en varir!

  • 1
  • 2

Réttað verður í Skaftholtsréttum  föstudaginn 10. september kl. 11:00 og Reykjaréttum laugardaginn 11. september kl. 09:00. Fyrstu fjallmenn fóru í dag, 2. september, af stað í lengstu leitina sem var þó stytt um einn dag nú í ár frá því sem venja hefur verið.   Við skoðun á því fé sem þegar er ...

01.09.2010

Maíspokarnir fást í Krónunni, Landstólpa og Versl. Árborg

Að gefnu tilefni:Íslenska gámafélagið hefur náð samningum við Kaupás/Krónuna á Selfossi um sölu á maíspokum fyrir lífrænan úrgang frá heimilum.  Auk þessa hafa þeir náð umtalsvert betri samningum við birgja sína varðandi kaup á pokunum svo verðið lækkar verulega með þessari aðgerð. Bendum einnig á að báðar stærðirnar, 8 ltr. og 30 ltr. fást hjá Landstólpa ehf ...

01.09.2010

SKÓGARFERÐ Í ÞJÓRSÁRDAL 19. september

  • 1
  • 2
  • 3

UPPLIT menningarklasi Uppsveita Árnessýslu kynnir SKÓGARFERÐ Í ÞJÓRSÁRDAL sunnudaginn 19. september.  Lagt verður af stað í rútu frá Árnesi kl. 14. Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi, lýsir gróðurfari í Þjórsárdal fyrr og nú á ferð um Búrfellsskóg og Þjórsárdalsskóg, auk þess sem rústir af nokkrum bæjum frá landnámsöld verða skoðaðar.  Þjórsárdalur er fallegur ...

25.08.2010

MINNISVARÐAR UM DR. HELGA PJÉTURSS

  • 1
  • 2

Í desember árið 2005 voru liðin 100 ár frá því að Helgi varð doktor í jarðfræði, fyrstur Íslendinga, og var honum af því tilefni reistur minnisvarði í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.  Helgi gerði sínar fyrstu meginuppgötvanir að Hellisholtum í Hrunamannahreppi og hefur nú verið komið þar fyrir upplýsingaskildi til minningar um ...

14.08.2010

Fréttabréfið á vefnum

Þá hefur nýtt Fréttabréfið litið dagsins ljós og ætti að skila sér í póstkassann  í Skeiða- og Gnúpverjahreppnum á mánudaginn.   Lesa hér. Vonandi höfum við öll haft það gott í sumar!Myndin er rekin á vígsludegi Skaftholtsrétta í júlí 2009 þegar endurbyggingu þeirra var formlega lokið en þær eyðilögðust í  jarðskjálftanum  17. júní 2000.

13.08.2010

Ný hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Skeiða- og Gnúpverjahreppi er stjórnað af fimm manna hreppsnefnd sem valin er í kosningum á fjögurra ára fresti. Meginhlutverk hennar er að sinna allri opinberri þjónustu, svo sem menntunar- og uppeldismálum, bygginga - og skipulagsmálum, atvinnu og umhverfismálum. Ný hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps tók til starfa í sveitarstjórnarkosningunum 2010. Hreppsnefndina skipa þau: Gunnar ...

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar