Febrúar 16, 2010
Sprengidagur - þriðjudagur í föstuinngangi
Sprengidagur er þriðjudagur í föstuinngangi, 7 vikum fyrir páska.
Talið er að nafn dagsins sé komið af því að menn eigi að borða á sig gat, „sprengja sig“ af mat. Það er þó talin vera alþýðuskýring. Erlendis heitir þessi dagur „feiti þriðjudagurinn“ (Mardi gras).
Á þessum degi borða margir saltkjöt og baunir. Upphaflega byrjuðu Íslendingar að borða saltkjöt á sprengidag þar sem saltskortur var mikill og þótti því veisla að fá saltað kjöt.




