486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps en hann liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519 talsins þann 1. desember 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.
10.03.2010

Skilafrestur efnis í Fréttabréfið 10. mars

Fréttabréfið kemur út þriðjudaginn 16.  mars 2010  Skilafrestur efnis er til miðvikudagsins 10. mars. Í Fréttabréfinu er ágætis vettvangur til ýmis konar skrifa og auglýsinga og er fólk hvatt til þess að notfæra sér það. Ábyrgðarmaður: Gunnar Örn Marteinsson Oddvitifrettabref@skeidgnup. isUmsjón:  Kristjana Gestsdóttir

11.03.2010

Aðalsafnaðarfundur Stóra-Núpssóknar

Aðalsafnaðarfundur Stóra-Núpssóknar verður haldinn fimmtudagskvöldið 11. mars kl. 20:30 í Þjórsárskóla. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd

12.03.2010

Árshátíð Þjórsárskóla 12. mars 2010

Árshátíð Þjórsárskóla verður haldin 12. mars 2010  - kl. 20:00 í Árnesi. Allir nemendur Þjórsárskóla  taka þátt í uppfærslu á leikritinu um Ronju ræningjadóttur  þar sem hljómsveit skipuð Stefáni Þorleifssyni og tónistarnámsnemendum leikur með. Aðgangur kr. 1000,- fyrir fullorðnaInnifalið er veglegt kaffihlaðborð og skemmtiatriði. ALLIR VELKOMNIR!Fylgist með á heimasíðu http://www. thjorsarskoli. is 

26.03.2010

Íslenskir landnámshænuungar í leikskólanum

Íslenskir landnámshænuungar koma í heimsókn, í leikskólann, vikuna 22.   - 26. mars n. k.   þeir eru frá Valgerði á Húsatóftum og ætlar hún að leyfa börnunum að skoða þá.

29.03.2010

Starfsdagur - leikskólinn lokar kl. 12:45

Starfsdagur  - leikskólinn lokar kl. 12:45

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar