486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
Febrúar 21, 2012

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, verður ræst í fimmta sinn miðvikudaginn 1. febrúar.

Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins, www.lifshlaupid.is en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í:

Vinnustaðakeppni frá 1.-21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri


Hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 1.-14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri

Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, heimilisstörfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embætti landlæknis um hreyfingu.

Einnig er hægt að fylgjast með stöðunni í hverju sveitarfélagi fyrir sig þar sem kemur fram fjöldi liða, þátttakenda, daga og mínútna.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar