486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
September 19, 2010

Skógarferð í Þjórsárdal sunnudaginn 19. september

Sunnudaginn 19. september verður farið í skógarferð um Þjórsárdal.


Lagt verður af stað í rútu frá Árnesi kl. 14:00.   Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi, lýsir gróðurfari í Þjórsárdal fyrr og nú á ferð um Búrfellsskóg og Þjórsárdalsskóg, auk þess sem rústir af nokkrum bæjum frá landnámsöld verða skoðaðar.

Þjórsárdalur er fallegur dalur sem geymir mikla sögu. Þar hafa listmálarar okkar m.a. leitað fanga í listsköpun sinni s.s. Ásgrímur Jónsson og fleiri. Andstæður landslagsins gera dalinn áhugaverðan og segja má að ágætt aðgengi sé þar fyrir ferðamanninn að skoða það sem náttúran býður upp á.

Í Þjórsárdalsskógi þar sem friðsæld ríkir verður boðið upp á kaffiveitingar. Áætlaður komutími til baka í Árnes er um kl. 18.

Verð fyrir rútuferð og kaffi er 2.000 kr. og eru þátttakendur beðnir að skrá sig í ferðina á netfanginu asborg@ismennt.is fyrir 19. september.

 

FYLGIS MEÐ Á  FACEBOOK!

Upplit er með síðu á Facebook og þeir sem gerast aðdáendur þar fá reglulega sendar tilkynnignar um viðburði framundan. Ennfremur má nálgast upplýsingar um dagskrána á vef uppsveitanna; www.sveitir.is 

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar