486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
September 11, 2010

Reykjaréttir 11. september

Réttað verður í Reykjaréttum  laugardagin 11. september.

Fólki er bent á að koma tímanlega því ævinlega er margt um manninn þar og

byrjað er að rétta  kl. 09:00    stundvíslega!

Flóa-og Skeiðamannaafrétti er skipt í Austurleit og Vesturleit.

Vesturleitarar fara inn á Sultarfit en Austurleit inn á Skeiðamannafit.

Tveir Flóamenn fara í Arnarfell  á Gnúpverjaafrétti, og nokkrir í Norðurleit og hitta þeir félaga sína á Skeiðamannfit og smala með þeim þaðan það sem eftir er ferðar.

Féð af Skeiðum og úr Flóa er ekki lengur rekið inn í Skaftholtsréttir heldur beitt  þar um tíma, og síðan er haldið áfram niður í Reykjaréttir.

Búast má við einhverjum töfum á umferð á þjóðvegi nr. 32 milli Árness og  Sandlækjarholts frá kl. 16:00  - 20:00 þann 10. sept.  þegar Flóa og Skeiðaféð fer niður hreppinn.

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar