Mars 22, 2010
Almennur íbúafundur í Brautarholti
Fundur verður haldinn í Brautarholti, mánudaginn 22. mars kl. 20:30.
Fulltrúar Íslenska gámafélagsins koma á fundinn ásamt oddvita og fara yfir árangur við flokkunina í sorpmálum.
Fulltrúar úr umhverfisnefnd Þjórsárskóla munu gera grein fyrir hvernig unnið er í anda grænfánaskóla og hvernig nemendur hafa sett saman auðlesinn bækling um sorpflokkun í samræmi við nýja flokkunar
Fólk er sérstaklega hvatt til að mæta og koma með spurningar ef eitthvað er óljóst og ekki síður ábendingar um það sem ykkur finnst að betur mætti fara í málaflokknum.




