486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
Febrúar 21, 2010

Messa fyrir prestakallið í Skálholtskirkju kl.11:00

Messa fyrir prestakallið verður sungin í Skálholtsdómkirkju þann 21. febrúar, á konudaginn kl.11:00.

Kvennakórinn Uppsveitasystur, mun leiða messusöng.

Prestur er séra Eiríkur Jóhannsson.

Njótum Guðsorðs og söngs, í þessu glæsilega húsi, á helgum stað.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar