486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.

Háifoss

Háifoss í Fossá er 122 m hár,  annar hæsti foss landsins. Allt fram undir  aldamótin 1900 var fossinn nafnlaus, en þá tók Dr. Helgi Pétursson sig til og nefndi hann. Rétt austan Háafoss er annar litlu lægri, Granni. Auðveldasta leið  að fossinum er frá línuveginum milli Tungufells og Sandafells. Þaðan þarf aðeins að ganga stuttan spöl niður í mót, en fara verður gætilega á brúnum gilsins. Útsýnispallur er við fossinn.

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar