486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Gaukshöfði

Gaukshöfði sem gnæfir úr Hagafjalli fram að Þjórsá ofan Haga.  Höfðinn ber nafn af  Gauki Trandilssyni bónda á Stöng og talið er að hann hafi verið veginn þar við Seggjasæti svo nefnt sem var sunnanmegin í höfðanum við gamla vegstæðið en er nú að mestu horfið.
Gaukur Trandilsson á Stöng var bæði auðugur og vel ættaður en hann var afkomandi Þorbjarnar laxakarls í þriðja lið og að sögn kappi hinn mesti. Gaukur hefur að líkindum verið kvennaljómi en gömul vísa er varðveitt um ástir Gauks og húsfreyjunnar á Steinastöðum í Þjórsárdal, svohljóðandi:

Önnur var  öldin,
er Gaukur bjó á Stöng.
Þá var ei til Steinastaða
leiðin löng.

Þetta ástarævintýri hefur þó sennilega orðið honum að fjörtjóni en samkvæmt Njálssögu féll Gaukur fyrir hendi Ásgríms Elliða-Grímssonar fóstbróður síns, þar sem hann sat fyrir honum við Seggjasætið í Gaukshöfða. Að líkindum fyrir að hafa fíflað húsfreyjuna á Steinastöðum sem var einmitt skyld Ásgrími.

Mynd tekin af Gaukshöfða  inn yfir Þjórsárdal. Þjórsá rennur fram í mynni dalsins.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar