Fjallaskálar
Fjallaskálar eru sex á afréttunum. Afréttarmálafélag Flóa- og Skeiðamanna á tvo.
Hallarmúli er vestastur, ofan Skáldabúða, svefnpláss er fyrir 20 manns.
Klettur er vestan og innan Reykholts. þar er kalt vatn. Gistipláss fyrir 20 manns og vatnssalerni og eldhúsaðstaða er inn í húsinu.
Sveitarfélagið sjálft á fjóra og er Hólaskógur þeirra stærstur. Hann er staðsettur neðan Fossheiðar, miðja vegu á Hafinu, sem kallað er, og liggur á milli Búrfells og Sandafells. Sá skáli er leigður út til ferðaþjónustuaðila, Óbyggðaferða ehf.
Gljúfurleit, á hjöllum, skammt neðan Gljúfurleitarfossins í Þjórsá. Þar eru 25 svefnpláss - Vatnssalerni er inn í húsi. Hesthús áfast skálanum - ekki mjög stórt. Eldunaraðstaða er fyrir hendi og gasofn.
Bjarnalækjarbotnar framan við Fjórðungssand og Tjarnarver innan hans. Í þessum skálum gista fjallmenn að hausti en einnig eru þeir leigðir ferðahópum að sumarlagi og þá einkum hestafólki á ferð. Vegur að þeim þremur síðast nefndu er afar torfær.
Gisting í Hallarmúla og Kletti er kr. 1.500,- nóttin.
12 ára og yngri 750,-
Hey verður fólk að taka sjálft með sér af sama sauðfjárveikivarnarsvæði og skálarnir eru í og hefur Ingvar Hjálmarsson í Fjalli oft aðstoðað með það. Sími 891-9597
Gjaldskrá 2011 var:
Gisting pr mann í Gljúfurleit og Bjarnalækjarbotnum kr. 1.500,- án vsk
Hey pr. hest kr. 600,-
Gisting 13 ára og yngri 1000,-
Aðstöðugjald í Tjarnarveri kr. 500,- óháð aldri.
Hey pr. hest í Tjarnarveri kr. 800,-
Mynd nr. 1 (eftsta mynd) Gljúfurleitarskálinn. 25 svefnpláss.
Mynd nr. 2 Hólaskógur, gamli leitarmannakofinn sem byggður var 1936 og endurbyggður 1996 - sýnir sögu fjallmanna fyrri tíma.
Aðalskálinn í Hólaskógi tekur um 60 manns. Þar er heitt og kalt vatn, sturtur, rafmagn og gufubað. Óbyggðaferðir ehf sjá um skálann í Hólaskógi.
Mynd nr. 3 Bjarnalækjarbotnaskálinn, 14-15 svefnpláss.
Mynd nr 4 Í Tjarnarveri er svefnpláss fyrir 8 manns og náðhús með gamla laginu!
Mynd nr. 5 Hesthúsið í Tjarnarveri.
Mynd nr. 6 Bjarnalækjarbotnaskálinn í nærmynd 14-15 svefnpláss.




