Ólafsvallakirkja
Ólafsvallakirkja er nú í nýstofnuðu Hrunarprestakalli.
1. janúar 2010 var Stóra-Núpsprestakall lagt niður og Ólafsvallakirkja og Stóra-Núpskirkja settar undir Hrunaprestakall.
Það var tilskipan frá Biskupi Íslands.
Timburkirkjan, sem nú stendur, var byggð 1897 og tekur 120 manns í sæti. Samúel Jónsson frá Hunkubökkum á Síðu var yfirsmiður.
Altaristafla eftir Baltasar sýnir síðustu kvöldmáltíðina. Þorsteinn Guðmundsson, málari, málaði hina altaristöfluna, sem er mynd af krossfestingunni. Prestssetur var á Ólafsvöllum til 1925, þegar staðurinn var lagður til Stóra-Núps.
Séra Eiríkur Jóhannsson í Hruna er sóknarprestur og
Þorbjörg Jóhannsdóttir, Stóra-Núpi, organisti.
Valgerður Auðunsdóttir Húsatóftum I, meðhjálpari.




