486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Þjórsárver

Víðáttumikið gróðursvæði báðum megin Þjórsár. Vestan árinnar nær það yfir verin frá Hnífá og svo langt sem samfelldur gróður nær en að austan teljast til þeirra Eyvindar- og Þúfuver (sjá Biskupsþúfa, Eyvindarver).
Hér verður einkum lýst verunum vestan Þjórsár. Þau er skorin sundur af kvíslum, Blautukvísl, Miklukvísl, þá Múlakvíslum tveimur og Arnarfellskvísl. Með kvíslunum eru nokkrir sandar en annars er landið algróið að heita má. Mestur hluti veranna er votlendur, vaxinn broki og stinnustör en grávíði þar sem þurrast er. Mosi er hvarvetna mikill og gróðurinn því gisnari en hann sýnist tilsýndar. Hafa fundist þar alls 167 tegundir háplantna (þ.e. blómplantna og byrkninga). Er það rúmlega þriðjungur íslensku flórunnar. Sums staðar eru flár með allstórum rústum. Neðst er Tjarnaver, vestan við Blautukvísl, þá Oddkelsver, milli hennar og Miklukvíslar. Í því rís lág melalda niðri undir Þjórsá, Oddkelsalda. Segir sagan að þar hafi útilegumaður, Oddkell að nafni, verið dysjaður ásamt konu sinni. Næst er Illaver, mjög illræmt vegna bleytu og rótleysis, og Arnarfellsver innst. Neðst í Arnarfellsveri heitir Arnarfellsalda. Á melöldu vestur af Arnarfellsmúlum er sérkennilegt mannvirki. Er það rétt hlaðin úr grjóti. Réttir þessar voru notaðar fyrrum til að smala í þær gæsum sem voru í sárum en þá var að staðaldri farið til gæsaveiða í Þjórsárverum á sumrum. Slíkar gæsaréttir eru margar í Þjórsárverum. En í Þjórsárverum er talið að fleira sé um heiðagæsir en á nokkrum stað öðrum á jörðinni. Hefur verið áætlað að um 9 - 11.000 fullorðnir fuglar komi þangað til varps á vorin en nokkrir tugir þúsunda (allt að 40 þúsund) hverfi brott á haustin ef engin óhöpp henda. Eru Þjórsárver að þessu leyti einn af merkustu stöðum lands vors og því full ástæða til að þeirra verði gætt í framtíðinni. Öll eru Þjórsárver talin vera um 150 km².
Heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1995.


Þjórsárver

Vegnúmer : F26

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar