Reykjaréttir
Reykjaréttir eru skammt fyrir sunnan bæinn Reyki. Þær voru byggðar að stofni til árið 1881. Þar rétta Skeiða- og Flóamenn fé sitt.
Um langan aldur hafa Reykjaréttir verið einar fjárflestu réttir á Suðurlandi, en nú hefur fé heldur fækkað þótt fjöldi fólks sem sækir Reykjaréttir sé ennþá mikill.
Á aldarafmæli Reykjarétta voru þær að mestu leyti hlaðnar að nýju og færðar til hinnar upphaflegu gerðar. Veggir réttanna eru axlarháir (1.50 m), hlaðnir úr hraungrýti og tyrfðir ofan. Við hliðina er svo nátthagi, girtur hringlaga hraungrýtisgarði.
Árið 2010 er réttað í 36. viku ársins, laugardaginn 11. september, eftir breytingar sem gerðar voru árið 1996 en þá var þeim seinkað um einn dag.
En 2011 verður réttað í 37. viku ársins, laugardaginn 17. september.
Ekki er lengur rekið inn í Skaftholtsréttir eins og áður var gert en Flóa- Skeiðamenn draga sitt fé í Reykjaréttum.
Í daglegu tali er oftar talað um Skeiðaréttir en Reykjaréttir.




