486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.

Skaftholtsréttir

Árið 2010 verða Skaftholtsréttir í 36. viku ársins eða þann 10. september 2010.

Árið 2011 verður réttað  í 37. viku ársins, 16. september.

 

Skaftholtsréttir eru fjárréttir Gnúpverja í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Réttirnar, þ.e. réttastæðið, er talið vera það elsta á Íslandi og er talið vera frá 12. öld. Réttirnar eru hlaðnar úr Þjórsárhraungrýti og  Sigurður Eyvindsson í Austurhlíð teiknaði þær.  Réttirnar fóru illa í Suðurlandsskjálftunum sumarið 2000, nánast eyðilögðust,  og var almenningurinn endurhlaðinn í kjölfarið og steinsteyptar umgjarðir dilkadyra endursteyptar.

Í nóvember 2005 var stofnað Réttavinafélag Skafholtsrétta og afhenti félagið  sveitarfélaginu þær full endurgerðar í júlí 2009. Heppnaðist verkið við endurgerð þeirra mjög vel og þar sannaðist hið fornkveðna "margar hendur vinna létt verk" því margir komu að því mikla og fórnfúsa starfi en þeir hleðslumenn Kristján Ingi og Víglundur eiga þar lof skilið fyrir sitt framlag við verkið. 

Fram til ársins 1996 var réttað á fimmtudegi, en var þá flutt til föstudags í 22. viku sumars. Fram til haustsins 2007 var austursafn Skeiða- og Flóamanna rekið í almenning um 10-leytið að morgni og dregið var úr því í allt að tvo tíma. Nú hefur því verið hætt og fer fé Flóa- og Skeiðamanna fram hjá. Um 2.500 fjár er í því safni sem nú er réttað  í Skaftholtsréttum.

 

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar