Reiðleiðir
Þó nokkrir möguleikar eru á að geta farið á hestbak í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Fyrst er að minnast á Þjórsárbakka eins og oftast er talað um. það eru vestari bakkar Þjórsár sem eru þurrir og tiltölulega sléttir upp öll Skeið. Hægt er að fara frá Þjórsárbrú við Þjórsártún og ríða upp með ánni að vestan þar til komið er að Þrándarholti.
Nýlegar reiðgötur eru upp með vegi nr. 32 á Skeiðum.
Góður reiðvegur er að Skálholti en þá er farið hjá Reykjum, Ósabakka og yfir Iðubrú.
Mjög gott og vinsælt er svo að fara inn í Þjórsárdal á hestum og ríða vikrana inn að Kletti og þaðan yfir í Hallarmúla á Flóamannaafrétti.
Einnig er góð og vinsæl reiðleið inn vikrana að Stöng og þaðan inn í Hólaskóg, áfram yfir Sandafell inn í Skúmstungur inn Hjalla og í Gljúfurleit þaðan inn í Bjarnalækjarbotna, og þá Tjarnarver. Þaðan er svo u.þ.b. dagleið fram og til baka inn í Arnarfell hið mikla við Hofsjökul.
Mynd nr. 1. Áð í gerðinu við Stöng en þar er gott og öruggt að stansa með mörg hross.
Mynd nr.2. Farið yfir á vaðinu í Þjórsá við Þjórsárholt.
Myndir nr. 3 og 4. Fangabrekkugerðið á Sandártungu í Þjórsárdal.




