486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.

Skeiðaáveitan

Mesta afrek Skeiðamanna var Skeiðaáveitan. Hún bætti afkomu bænda með aukinni sprettu og sléttari engjum. Skeiðaáveitan var merkur áfangi í framfarasögu sveitarinnar ásamt jarðræktarlögunum sem samþykkt voru 1923, sama árið og Skeiðaáveitan tók til starfa. Skeiðaáveitan styrkti stöðu Búnaðarfélagsins og kenndi bændum að vinna saman. Árin sem áveituverkið stóð yfir var minna unnið að öðrum jarðabótum þó alltaf nokkuð.

Myndin er af skurðgröfunni sem notuð var við verkið.

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar