486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
16.05.2012

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL

í Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og FlóahreppiÁður en tillaga að breytingu á aðalskipulagi er tekin til formlegrar afgreiðslu skal tillagan og forsendur hennar kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar eftirfarandi tillaga að breytingu á aðalskipulagi: 1.  Breyting á Aðalskipulagi Hraungerðishrepps ...

15.05.2012

Fréttabréf maí komið á vefinn

Maí Fréttabréf komið út,  lesa hérÝmislegt að að skoða.

08.05.2012

Þjórsárstofa auglýsir eftir starfskröftum!

Starfskrafta vantar frá  24. maí - 1. september  2012 við upplýsingagjöf og móttöku gesta í Þjórsárstofu í Árnesi. www. thjorsarstofa. is Umsækjendur þurfa að hafa staðgóða þekkingu á svæðinu, góða tungumálakunnáttu, (ensku og eitt til tvö önnur tungumál, auk íslensku. ) Þá er lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum nauðsynleg auk tölvukunnáttu. ...

27.04.2012

Laus sumarstörf við Neslaug og Skeiðalaug.

  • 1
  • 2

Starfsfólk vantar til starfa í sumarvið sundlaugar sveitafélagsins. Um er að ræða hlutastörf um helgar en einnig aðra daga. Upplýsingar veitir Eyþór  í síma 897-1112

26.04.2012

Starfskraftur óskast tímabundið í leikskólann

Starfskraftur óskast eftir í tímabundna afleysingu í skúringar við leikskólann leikholt, um er að ræða frá miðjum maí til 25. júní n. k. . Upplýsingar veitir leikskólastjóri í s. 4865586 eða 8952995.  

25.04.2012

Kynningarfundur um skipulag 2. maí í Árnesi kl. 13 - 18

Deiliskipulag fyrir minnkabú á spildu úr landi Ása í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Eigendur jarðarinnar Ása í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa hug á að koma á fót nýju minnkabúi og hafa þess vegna unnið að gerð deiliskipulags fyrir minnkabú á um 4,5 ha spildu sem liggur að Stóra – Núpsvegi nr. 382. ...

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar